24 Temmuz 2007 Salı

klikkaðar fréttir!

“Pabbi” er orðinn múslimi (hugsamlega íslamisti) ef eitthvað er að marka skeggið sem hann skartar og húfuna sem hann dýrkar. Hann hefur ekki opnað á sér munninn eftir niðurlægingu síðustu helgar þegar við reyndum að skemmta landi og þjóð með hörmulegum árangri (segir hann!). Sá gamli er orðinn fúlskeggjaður en næstum hárlaus að öðru leiti. Mér sýnist að Halim-vini-mínum-Al hafi tekist að “kristna” kallinn! Rakararnir vilja raka hausinn á honum og smyrja með smyrslum sem brenna. Hann fílar svoleiðis. Samskipti okkar á milli eru í sögulegu lágmarki og ég er farinn að hafa áhyggjur. Ég er mest hræddur um að hann raki allt hár af og fari til Gaza eða Írak og gerist alvöru píslarvottur. Ég þoli ekki svona.

1 yorum:

Gunnhildur dedi ki...

dullegur, láttann líkja á apablogg http://www.catster.com/cats/265271