29 Haziran 2007 Cuma

hár

“Pabbi” er alveg frábær. Hann hefur ákveðið að láta hárið sem af honum fellur af hendi rakna til mín. Hann hefði vel getað í sjálfsvorkun sinni látið hárið af hendi rakna ofan í næsta rusladall eða látið það dúsa í svelgnum þangað til einhver kellingin hefði losað stífluna, hugsanlega með stíflueyði. En hann er ekki þannig. Hann gefur reglulega blóð og honum væri best trúandi til að láta líffæri sín af hendi rakna handa hungruðum heimi þegar hann fer yfir móðuna miklu, sem ég vona svo sannarlega að verði ekki alveg á næstunni, allavega ekki fyrr en hans hár er orðið mitt.

28 Haziran 2007 Perşembe

kellingarnar hér

Það er svolítið sérstakt með kellingarnar hérna og gæti vakið áhuga vina mina sem stunda blogg; þær eru upp til hópa með stutta fótleggi! Mjaðmirnar eru í sömu hæð og hnéskeljar kynsystra þeirra frá Íslandi. Þetta er svolítið sérstakt. Ég myndi ekki segja að þær væru afskræmdar en allt að því. Ég hef látið mig hafa það að klípa í þær enda ekki kröfuharður í eðli mínu. Ef ég hefði fótleggi er ég ekki frá því að þeir væru hlutfallslega stuttir eins og á “pabba” mínum. Nei, ég get ekki kvartað, það mætti jafnvel segja að ég væri hetja að kvarta ekki, það myndi “pabbi” segja. Ég er bara þakklátur fyrir að fá eitthvað! Þær betur menntuðu virðast vera með lengri leggi og ég hef einbett mér að þeim. En djöfull eru þær kröfuharðar!!! Það nægir þeim ekki að ég er ekki svertingi. Öðru máli gegnir um þær fótleggjastuttu. Þeim nægir bláu augun og ljósu lokkarnir, sem nota bene þykja dökkir á ástkæra ilhýra. Hver skilur konur?! Stundum langar mig mest til að brenna kofann, flytja útá land og gerast hommi! Gaurinn fyrir ofan segir að strákadiskótekin hér séu alveg geggjuð! Og að hann hafi farið í trekant útá miðju dansgólfi. Af hverju er þetta ekki svona á diskótekum kellinga?

25 Haziran 2007 Pazartesi

Halim Al

Fór á Besíktas Cultur Markezi í dag, sem er ekki í frásögu færandi, nema að ég hitti Halim-gamla-vin-minn-Al í grænmetisdeildinni. Hann var eitthvað að flýta sér enda bænastund á næsta leyti, en hann skildi eftir í minni umsjá dætur sínar, sem sumir kalla dætur Soffíu Hansen, en ég kalla einfaldlega Dellu og Drullu í höfuðið á forsetadætrunum fallegu, Döllu og Dollu. Della og Drulla voru kappklæddar þrátt fyrir hitabylgjuna sem er að gera okkur pabba gráhærða (eða eiginlega sköllótta).
Það kom mér rosalega á óvart hvað þær eru sjálfbjarga!!! Við fórum öll saman og fengum okkur djúpsteiktann smokkfisk. Ég ákvað að segja þeim ekki frá þessari fáránlegu smokkatengingu við matinn enda eru þær mjög siðprúðar og bara æðislegar stelpur. Þær voru búnar að gleyma mikið af íslenskum fiskaheitum en virtust því flinkari í að beita fyrir sig tyrkneskum fiskaheitum. Sem betur fer mundu þær hvað ég heiti og ég get lofað ykkur því að þær hafa ekki gleymt hlýhug íslensku þjóðarinnar á sínum tíma, þó þær hafi með tímanum lært að sá gamli hafði auðvitað rétt fyrir sér. Ótrúlegur karakter hann Halim!

24 Haziran 2007 Pazar

búk

Ég held ég sé að ganga af göflunum!!! Ég nenni ekki að fara nánar útí það, en þessu langar mig að deila með ykkur: Ég uppgvötaði að "pabbi" er óttaleg tepra. Það þýðir samt ekki að mér þyki minna vænt um hann en áður. Við stefnum á að vera með okkar fyrsta sameiginlega show í næstu viku á einum ágætum stað (ekki Broadway). Þið ykkar sem verðið sunnan við miðbaug þegar þar að kemur er bent á að gefa upp nafn og kennitölu svo ég geti sett ykkur á gestalista. Þetta verður geggjað show!!! Við erum komnir með klikkað prógram! Auðvitað hef ég soltlar áhyggjur af tepruskapnum í "pabba" en ég held samt að Baldur og Konni mega fara að vara sig (þó þeir hafi verið alveg frábærir). Ætli það megi ekki segja að við séum Baldur og Konni tuttugustuogfyrstu aldarinnar. Ég held að það séu peningar í þessu!!!

að lokum (í dag)

Ég held að ég sé að þróast yfir í það verða netverji!!! Langaði bara að bæta við einni sögu: Ég var í sakleysi mínu að eltast við eina tyrkjaguddu þegar kallinn hennar kom og sagði: Ég er pabbi hennar! og steytti hnefann (þann vinstri, enda kallinn örvhentur). Ég sýndi honum hægri hnefann og spurði: Þekkiru þennann? og áður en hann gat svarað gaf ég honum bilmingshögg með vinstri hnefanum og sagði kankvís: Þetta er bróðir hans! Ég þarf líklega ekki að taka það fram að ég fór ekki einn heim það kvöldið, en ég hefði viljað hafa verið fluga á vegg þegar hann kom heim til sinnar kellu með glóðarauga. Ég sé hann fyrir mér ljúga því að hann hefði verið að raka sig. Vona að stelpugálan hafi haldið kjafti.

og meira

Ég hreinlega get ekki hætt! Það mætti halda að ég væri kominn með ritræpu sem er ekki ósvipuð og munnræpa en ekki eins hvimleið. Fyrr í kvöld skrifaði ég að ég myndi á þessu bloggi skrifa það sem á daga mína drífur, dag eftir dag, en ég gleymdi að auðvitað hafa mikilvægir atburðir gerst áður, sem vert er að nefna og ætla ég ekki að hlífa lesendum við þeim upplýsingum þó þær kunni að snerta viðkvæma strengi (í ykkur). Það fáránlegasta sem hefur komið fyrir mig síðan ég í þetta land kom, er að ég og "pabbi" erum komnir með blettaskalla!!! Ég sver það og við skömmumst okkar ekkert fyrir það, en auðvitað getur það átt eftir að breytast. Enn sem komið er getur ekki nokkur maður séð blettina nema fikta í hárinu fyrst (Guð hjálpi þeim sem gera það án leifis (myndi svoleiðis taka í hnakkadrambið á þeim)) hvað sem framtíðin ber í skauti sér. Murat sagði að sniðugt væri að merja hvítlauksgeira og maka á blettina. Kellingin virðist ekki nenna að gera það (Ég hefði haldið að hún væri betur til þess fallin enda er ég ekki með augu í hnakkanum) þannig að ég verð víst að gera það sjálfur. Fáránlegt. Fáránlegt af því að það er svo ósanngjarnt. Ósanngjarnt eins og lífið.

frábær dagur

Geggjað að vera kominn með bloggsíðu!!! Hér ætla ég að segja frá því sem á daga mína drífur. Hlakka mikið til og vona að lesendur hafi gagn og gaman af. Á morgun ætla ég að segja frá því sem gerist á morgun, daginn eftir ætla ég að segja frá því sem gerist þann daginn og svo framvegis. Ég vona svo sannarlega að ég eigi eftir að lenda í klikkuðum ævintýrum til að bregðast ekki vinum mínum. Nú ætla ég að segja frá því sem gerðist í dag:
Ég vaknaði eftir sturlaða næturlífsnótt, náði mér í vatn og síkarettu og horfði á skemmtilegt sjónvarpsefni. það var svolítið hlægilegt að þegar mér loksins tókst að rífa mig á fætur til að að kaupa meiri síkarettur og bjór útá kredit, steikja kartöfflur og salta þær, missti ég af æringjunum í the Simpsons!!! Það var fáránlegt. Fáránlegt afþví að ég hefði sjálfsgt haft gaman af að sjá þáttinn. Kellingin sagði mér síðar að hann hafði verið mjög góður. Dýrka þetta líf! Ég fékk svo góðfúslegt leifi til að kíkja undir rófuna á henni (hún gat ekki annað eftir að ég hafði steikt ofan í hana og keypt handa henni nauðsynjar) og brundaði náttúrulega samt í vaskinn eins og venjulega. Seinna fengum við kjötbollur hjá vini okkar sem kann að elda. Sá kann að elda! Einnig skenkti hann okkur víni og vatni. Kvöldið endaði svo vel þrátt fyrir pissulyktina í herberginu eftir enskukennarann sem var allsber síðast þegar ég sá hann. Sá er góður! Eins gott að kellingin var sofandi útá svölum, annars hefði hún fríkað út (eðlilega).