24 Haziran 2007 Pazar

búk

Ég held ég sé að ganga af göflunum!!! Ég nenni ekki að fara nánar útí það, en þessu langar mig að deila með ykkur: Ég uppgvötaði að "pabbi" er óttaleg tepra. Það þýðir samt ekki að mér þyki minna vænt um hann en áður. Við stefnum á að vera með okkar fyrsta sameiginlega show í næstu viku á einum ágætum stað (ekki Broadway). Þið ykkar sem verðið sunnan við miðbaug þegar þar að kemur er bent á að gefa upp nafn og kennitölu svo ég geti sett ykkur á gestalista. Þetta verður geggjað show!!! Við erum komnir með klikkað prógram! Auðvitað hef ég soltlar áhyggjur af tepruskapnum í "pabba" en ég held samt að Baldur og Konni mega fara að vara sig (þó þeir hafi verið alveg frábærir). Ætli það megi ekki segja að við séum Baldur og Konni tuttugustuogfyrstu aldarinnar. Ég held að það séu peningar í þessu!!!

Hiç yorum yok: